Hafið samband:
Sibba
Blönduós
+354 849 9370
tamning@tamning.is

English language
Sibba og Vidir

Um okkur

SibbaSibba er fædd 1980, og kemur frá Gilsárteigi í Eiðaþingahá á Fljótsdalshéraði.

Sibba var alin upp við blandaðan búskap þar sem hestar voru ávallt til staðar. Hún hafði frá barnæsku ódrepandi áhuga á hestum og fór að ríða út ein sem barn, þar sem áhugi annarra heimilsmanna á hestunum var af skornum skammti.

Árið 1994 keppti Sibba fyrir hönd Freyfaxa á Landsmóti á Hellu í unglingaflokki. Hún naut mikillar aðstoðar heimilsfólksins á Tjarnarlandi á Héraði í kringum þetta Landsmót, og fór að vinna sem aðstoðarmanneskja við tamningar á Tjarnarlandi á sumrin í framhaldi af því. Það gerði hún alls fjögur sumur.

Eftir stúdentsnám í Reykjavík fór Sibba til Danmerkur að temja hesta sumarlangt. Eftir það innritaðist hún í Bændaskólann á Hvanneyri og lauk þaðan búfræðinámi árið 2003. Þaðan lá leiðin beint í Hólaskóla og útskrifaðist hún sem tamningamaður árið 2005 eftir verknámsdvöl hjá Agnari Snorra Stefánssyni, sem þá um veturinn hafði haft aðstöðu við tamningar á Hofi á Höfðaströnd.

Haustið 2005 vann Sibba á Sauðárkróki hjá Jóhanni og Sólveigu hjá Miðsitjuhestum, aðallega við frumtamningar.

Eftir áramótin 2006 færði hún sig yfir í Hörgárdal að starfa við tamningar og þjálfun á bæjunum Björg og Litlu-Brekku.

Frá því í september 2006 hefur hún starfað við tamningu- og þjálfun hrossa á Blönduósi.

Frá janúar til maí 2008 var Sibba í fríi frá tamningum og stundaði nám við reiðkennarabraut Hólaskóla. Hún útskrifaðist sem reiðkennari og þjálfari vor 2008.

Í júní hóf hún aftur störf við tamningar og þjálfun í reiðhöllinni Arnargerði.