Hafið samband:
Sibba
Blönduós
+354 849 9370
tamning@tamning.is
12.06.2009
Knapamerkjanámskeið í FossgerðiKnapar: Hestar: Búnaður: Bækur: Annað: Meiri upplýsingar um námskeiðið má sjá hér: Knapanámskeiðs Veggspjald | ![]() |
01.03.2009
Það er mikið að gera í reiðkennslunni þessa dagana. Ég er að kenna á kvöldin fyrir Hestamannafélagið Neista og á morgnana hef ég boðið upp á einkatíma sem margir hafa nýtt sér. Ég og Sandra Marin á Efri-Mýrum sjáum um kennsluna í æskulýðsstarfinu hjá Neista. Þar er boðið er upp á námskeið í knapamerkjum 1,2 og 3 og námskeið einu sinni í viku fyrir yngstu hópana. Sandra kennir knapamerki 1 og 2 og ég sé um knapamerki 3 og þau yngstu. Það má alveg hrósa Neista fyrir öflugt æskulýðsstarf, þar sem 40-50 börn eru á námskeiðum í heilan vetur. Á mánudagskvöldum eru síðan 12 hressar konur á námskeiði hjá mér og er virkilega gaman að því. Myndinni stal ég af heimasíðu Neista www.neisti.net, en þeir hafa verið | ![]() |
08.02.2009 Tamningastöðin í Reiðhöllinni Arnargerði er í fullum gangi þrátt fyrir að engar nýjar fréttir hafi borist í háa herrans tíð. Nú vinnur hjá mér Ragnhildur Haraldsdóttir, en hún er jafnframt í verknámi frá Hólum. Við erum með 22 pláss og mikið að gera sem betur fer. Langflest hrossin sem við erum með eru í frumtamningu, enda er aðstaðan í Reiðhöllinni eins og best verður á kosið til frumtamninga. Til stendur að uppfæra síðuna mun reglulegar nú eftir að ég er komin í netsamband aftur, þannig að það er óhætt fyrir áhugasama að fara að fylgjast með síðunni aftur. | ![]() |
30.11.2008 Við biðjumst velvirðingar á því að engar nýjar fréttir hafa borist á síðuna. Ástæðan er að Sibba býr nú í netlausu húsi og á því erfitt með að koma frá sér fréttum (þó margt sé að gerast). Um leið og Sibba nælir sér í net mun koma nýtt efni! Krista Vefstjóri | ![]() |
29.09.2008 Í síðustu viku var skipt um stalla í reiðhöllinni og svona dyttað að ímislegu smálegu. Óli And kom við annan mann og rumpaði verkinu af á aðeins tveim dögum. Það stendur reyndar til að skipta básunum þremur sem voru í húsinu út fyrir eina tveggja hesta stíu og einn bás, og verður það gert fljótlega. Gömlu járnstallarnir voru orðnir svo tærðir og ónýtir að þeir voru hreinlega að verða slysagildra fytrir hross. Nýju stallarnir eru úr plasti og voru keyptir frá Dalvík. Það er allt annað að sjá húsið núna eftir breytingarnar. Á myndinni er Óli við einn af nýju stöllunum. | ![]() |
31.08.2008 Ég hef verið viðriðin blóðtöku úr hryssum í Stóradal í Svínavatnshreppi í mörg ár, og finnst það skemmtileg vinna. Í Stóradal eru 70-80 "blóðmerar". Til að vera gjaldgeng sem blóðmeri þarf viðkomandi hryssa að vera að framleiða ákv. hormón, en hryssan framleiðir ekki hormónið nema vera fylfull. Sem hestamanneskja og dýravinur get ég ekki séð að nokkuð athugavert sé við blóðtöku úr fylfullum merum, að því gefnu að vel sé hugsað um hryssurnar að öllu leiti. Dýralæknir annast blóðtökuna, þannig að tryggt er fagmannlega sé að henni staðið. Ég hef sett inn á síðuna myndasyrpu sem ég tók í Stóradal fyrir stuttu, þar sem sjá má blóðtökuferlið frá A-Ö. Ef einhver er foritinn um blóðteku úr hryssum, má sjá myndirnar hér. | ![]() |
31.08.2008 Þá má segja að sumarið sé liðið. Tamningar hafa gengið vel og ég hef gengið frá samningi þess efnis að ég leigi reiðhöllina í haust og vetur og fram á sumar 2009. Ég hef ráðið mér nýtt aðstoðarfólk til að vera með mér í vetur þar sem Hedda ætlar að breyta til og fara aftur til Svíþjóðar í október, en hún er búin að vera ómetanlegur starfskraftur reiðhallarinnar í heilt ár. Nú er ég að taka við pöntunum fyrir tamningar í haust, og enn eru laust fyrir einhver hross þannig að það er um að gera fyrir hesteigendur að tryggja sér pláss. Frá 15. september hækkar mánaðartaxtinn hjá mér í 45.000 kr. (það er verðbólga gott fólk.........) En annars leggst haustið vel í mig, framundan eru göngur á Auðkúluheiði, og síðan taka við hausttamningarnar. Eitthvað af hrossum eru síðan að verða tilbúin í sölu og koma inn á síðuna fljótlega. Myndina tók Hanife Mueller, þýsk stúlka sem aðstoðaði okkur við tamningar í nokkrar vikur í sumar. | ![]() |
10.08.2008 Þessi kappi heitir Sesar og fæddist í Gilsárteigi í byrjun júní. Hann er undan Tjörva frá Ketilsstöðum og Seimsdótturinni Toppu frá Gilsárteigi. Hann dafnar vel, stór og skrefmikill. Annars er það að frétta af hrossaræktinni fyrir austan að Advaradótturinni Eldingu var haldið undir Þyt frá Neðra-Seli eftir landsmót. Hún er enn hjá hestinum og ekki búið að sóna frá honum ennþá. Vonandi megum við eiga von á folaldi undan Eldingu næsta sumar, en það yrði hennar fyrsta folald. | ![]() |
06.06.2008 Um síðustu helgi fórum við Hedda í hestaferð með góðum félögum fram á Auðkúluheiði. Við tókum með okkur hluta af hestunum (altso það sem var á járnum) og riðum fram í Áfanga. Við byrjuðum reyndar á að á að ríða í Stekkjardal strax á þriðjudegi og riðum þar út í tvo daga fyrir helgina. Það var gaman bæði fyrir okkur og hrossin að komast í annað umhverfi og nýjar reiðleiðir. Á föstudegi riðum við fram í Áfangaskála. Á laugardeginum fórum við í reiðtúr með tvo hesta sem var mjög gaman, Svavar í Litladal var dyggur leiðsögumaður í þeirri ferð. Á sunnudeginum riðum við svo aftur heim og fengum frábært veður allan tímann. Fljótlega birtast á síðunni fleiri myndir úr ferðinni. | ![]() |
29.06.2008 Afródíta kastaði í vikunni rauðu merfolaldi undan Braga frá Kópavogi. Í gær fórum við í Stóradal og litum á folaldið. Sú litla var bara nokkuð sperrt. Víðir var búinn að hóta því að folaldið yrði nefnt Helga Braga ef það yrði meri, en Helgi Braga ef það yrði hestur. Eftir nokkuð þref komum við okkur saman um þá málamiðlun að hún yrði nefnd Aþena frá Stóradal. Meðfylgjandi er mynd af þæm mæðgum. | ![]() |
18.06.2008 Sibba hefur hafið starfsemi í Reiðhöllinni Arnargerði frá 16. júní. Sibba útskrifaðist sem reiðkennari frá Hólaskóla þann 24. maí síðastliðinn og tekur hross í tamningu og þjálfun í sumar. | ![]() |
27.01.2008 Víðir verslaði sér hest á dögum. Það er Kormákssonurinn Börkur frá Brekkukoti sem Víðir tamdi í fyrra og gangsetti síðan núna í haust. Börkur er þó orðinn 8 vetra gamall, þó hann sé ekki meira en fjögurra-fimm mánaða taminn. Víðir keypti hestinn af Gísla Geirssyni á Mosfelli og vonast til að hann verði orðinn gjaldgengur í keppni í sumar eða næsta vetur. Börkur er ákaflega rúmur og efnilegur og vonandi á eftir að ganga vel með hann í vetur. Á myndinni er Víðir á Berki síðastliðið haust. | ![]() |
19.01.2008 Nokkuð langt er síðan ný frétt hefur komið inn á síðuna. Helst er það í fréttum að Heiðveig kom til baka frá Svíðjóð 6. janúar og Sibba byrjaði á Hólum 9. janúar. Víðir og Heiðveig sjá alfarið um tamningastöðina á Blönduósi núna á meðan Sibba býr á Hólum. Tamningar ganga vel og nýjar myndir af tamningatryppum munu birtast á síðunni á allra næstu dögum. Þann 12. janúar fór Sibba norður í Hörgárdal til að horfa á folaldasýningu ræktunarfélagsins Framfara. Þar heilluðu sérstaklega afkæmi Mola frá Skriðu. Þau voru öll hágeng og mjúk í skrokk, sýndu flest gang. Sibba pantaði umsvifalaust toll undir Mola frá Skriðu næsta sumar og ætlum við að halda Afródítu okkar undir hann. Á myndinni er Moli á ísmótinu "Þeir allra sterkustu" síðasta vetur. | ![]() |
03.01.2008 Við eyddum áramótunum fyrir austan í Gilsárteigi. Þar litum við að sjálfsögðu á "stóðið" í Gilsárteigi sem reyndar telur ekki nema sex hross orðið. Í haust voru felld tvö elstu hrossin þau Dagur, 28 vetra og Perla, 20 vetra. Sibba heldur því fram að Dagur hljóti að hafa verið síðasta afkvæmi Stjarna frá Bóluhjáleigu á Íslandi en ef þið vitið betur megið þið koma með athugasemd. Dagur þessi var alger meistari, nothæfur til alls og flestir gátu riðið honum. Sibba byrjaði sína hestamennsku á Degi, hann var m.a. fyrsti hesturinn sem hún keppti á. Dagur var alveg óbilaður þegar hann var felldur, en farinn mikið að stirðna. Annars litu hrossin í Gilsárteigi mjög vel út. Gustsdóttirin Grána er nú sú sem mestar vonir eru bundnar við af þessum hópi, en hún kemst á tamningaraldur næsta vetur.
| ![]() |
01.01.2008 Við sendum öllum vinum og vandamönnum nýjárskveðjur og óskum þeim farsældar og gæfu á nýju ári. | ![]() |
12.18.2007 Fyrr í haust pöntuðum við okkur mélalaust beisli frá bitlessbridle.com. Við höfum verið að nota það aðeins í haust og líkar vel að nota það á vissar hestgerðir. Næmir hestar sem eru spenntir, hræddir við mélin eða mjög ósáttir við mélin taka mélalausa beislinu mjög vel. Okkur finnst samt að ónæmir hestar og hestar sem eru framþungir og þungir í beisli, án þess að vera viðvæmir fyrir mélunum, ekki hafa eins mikið gagn af mélalausa beislinu. Það er mikill kostur við þetta beisli að það er hægt að gefa nákvæmar ábendingar með því. Hægt er að nota innri og ytri tauminn á svipaðan hátt og ef maður væri með venjulegt beisli, auk þess sem mjög lítið átak kemur á nefið á hestinum, en sumir hestar geta verið viðkvæmir fyrir því. Sibba hefur m.a. notað mélalausa beislið mikið á hestinn sinn Bessa frá Sóleyjarbakka, með ágætum árangri. Við teljum nú samt ennþá að mélin séu næmasti og besti beislabúnaðurinn, ef rétt er farið með. Það er þó mjög gott að geta gripið til mélalausa beislisins, og yfirleitt líður ekki sá dagur að það sé ekki notað á einhvern hest. Á myndinni er Bessi með mélalausa beislið. | ![]() |
08.12.2007 Senn líður að jólum og áramótum, og þá mun fækka um einn á tamningastöðinni. Sibba er að fara til náms við reiðkennaradeild Hólaskóla, og hefst önnin 9.janúar. Víðir og Hedvik hin sænska munu sjá um tamningarnar eftir áramót. Hedvik fer í jólafrí 17. desember, en kemur aftur til okkar í byrjun janúar. Marie, sem einnig starfaði hjá okkur í haust hefur þegar hætt störfum. Núna erum við að draga aðeins úr hrossafjöldanum hjá okkur. Við höfum haft á leigu tvö hesthús í haust, eitt 20 hesta hús sem er sambyggt reiðhöllinni og annað í hverfinu þar sem hafa verið 13 hross að jafnaði. Líklegast munum við ekki leigja önnur pláss en þau 20 sem fylgja reiðhöllinni eftir áramótin. | ![]() |
17.11.2007 Það hefur ekki margt fréttnæmt gerst hjá okkur undanfarið, reyndar alger gúrkutíð ríkt í tamningabransanum. Allt gengur sinn vanagang í hesthúsinu, en af perónulegum högum okkar er það helst að frétta að Víðir fór í klippingu. Eins og sjá má á myndunum sem fylgja fréttinni var orðin veruleg þörf á úrbótum. | ![]() |
01.11.2007 Vinkona okkar hún Ingveldur frá Böðvarshólum í V-Hún hafði samband við okkur og sagðist hafa tekið heimasíðuna okkar fyrir sem verkefni í Bændadeildinni á Hvanneyri þar sem hún er við nám. Verkefnið var að taka fyrir eina heimsíðu, kynna hana fyrir bekknum og síðan átti bekkurinn að gagnrýna síðuna. Skemmst er frá því að segja að “bekkurinn” setti helst út á það að síðan væri grá og litlaus, og of lítið fjallað um frumtamningar og tamningatryppin - þar sem það væri nú aðalþema síðunnar. Við munum að sjálfsögðu taka þessa gagnrýni til okkar og gera breytingar hið snarasta! Við stefnum á það að birta myndir af tryppunum, ætt þeirra og fleira, á allra næstu dögum og við þökkum Ingveldi kærlega fyrir ábendingarnar. Upplýsingar um tryppin má sjá hér. | ![]() |
23.10.2007 Það er helst í fréttum að Sibba fór í inntökpróf fyrir reiðkennaradeild Hólaskóla á laugardaginn var og komst inn í skólann. Þetta þýðir að hún mun verða á skólabekk frá janúar fram í maí 2008. Í prófinu var Sibba með Blæ frá Egilsstaðabæ sem klárhest og Bessa frá Sóleyjarbakka sem alhliðahest. Blær er Andvarasonur sem Sibba er með í láni frá Ármanni Magnússyni, hestamanni á Egilsstöðum. Bessi er undan Ögra frá Háholti og Jöru frá Laugarvatni, og á Sibba hann sjálf. Á myndinni er Bessi, knapi Sindri Sigurðsson. | ![]() |
14.10.2007 Það er helst í fréttum að við fóru skot túr austur á Hérað um helgina. Megintilgangur ferðarinnar var að skutla gangnahestunum frá Gilsárteigi aftur heim til sín. Sibba er með þá í þjálfun á sumrin fyrir norðan, og svo fara þeir aftur austur á haustin. | ![]() |
12.10.2007 Í gær, 11. október hafði heimasíðan verið opin í mánuð og þá höfðu rúmlega 2000 manns skoðað hana. Það eru um 500 á viku sem er nú bara nokkuð gott. Sérstaklega þar sem teljarinn telur bara hversu margar “tölvur” fara inn á síðuna, en ekki birtingar. Hann telur hverja tölvu aðeins einu sinni. Við erum mjög ánægð með viðtökurnar, en auðvitað hjálpaði það mest að það kom frétt um síðuna okkar á hestafrettir.is þegar hún var nýbúin að opna. Við viljum þakka Snæbrá Kristu Jónsdóttur, heimasíðuhönnuði og sérlegum uppfærslustjóra kærlega fyrir alla vinnuna við að hanna síðuna, koma henni í loftið og síðast en ekki síst fyrir að hjálpa okkur að uppfæra hana reglulega. | ![]() |
08.10.2007 Í dag fengum við tvær nýjar aðstoðarkonur í hesthúsið. Þær koma frá Svíþjóð og heita Hedvik Ahlsten, 21 árs og Marie Anderson,19 ára. Það er planið hjá þeim að vera hjá okkur fram á næsta sumar. Þær munu aðallega aðstoða við hirðingar en auðvitað ríða eitthvað út líka og læra sem mest þær geta. Þetta er í fyrsta skipti sem þær koma til Íslands en báðar eru vanar íslenskum hestum í Svíþjóð. Við bjóðum þær hjartanlega velkomnar til starfa hjá okkur! Á myndinni er Hedvik til vinstri, og Marie til hægri. | ![]() |
06.10.2007 Jæja. Góða veðrið síðustu daga hlaut að hefna sín eins og konan sagði..... Svona var umhorfs í garðinum hjá okkur í morgun. Við ætluðum í Víðidalstungurétt í dag, en sleppum því þar sem bíllinn hjá okkur er á sléttu, rétt eins og megnið af hrossunum reyndar. Góðu fréttirnar eru samt þær að það er búið að keyra inn nýju efni í gólfið í reiðhöllinni. Það er allt annað að vera með hross í höllinni núna, gólfið er hæfilega mjúkt og fer vel með hestana. Það verður að koma í ljós hvernig gólfið á eftir að taka mikilli notkun, hvort það harðnar mjög fljótt, eða hvort þetta helst í horfinu. Efnið sem sett var í efsta lagið er salli frá malarvinnslu. Það er alveg ómetanlegt að hafa reiðhöll á svona illviðrisdögum. Allt skipulag verður betra og minna stress hjá okkur tamningamönnunum þar sem tamningar stjórnast mun minna af veðrinu en annars væri. | ![]() |
30.09.2007 Við fórum í Stóradal í dag og tókum út folöldin þar. Í Stóradal fæðist fjöldinn allur af folöldum á hverju ári, en lang flestum þeirra er lógað. Það er frekar sorglegt því mörg þeirra eru gullfalleg, undan fyrstu verðlauna hesti og góðum reiðhryssum. Við smelltum mynd af nokkrum þeim álitlegustu og best ættuðu. Þau eru komin á myndasíðuna og geta áhugasamir skoðað og jafnvel náð sér í efnilegt folald á rétt rúmu sláturverði. Kíkið á myndasíðuna og ekki hika við að hafa samband því nú fer að styttast í að þau verði send til slátrunar og fer því hver að verða síðastur að gera góð kaup. | ![]() |
23.09.2007 Í gær var hrossum réttað í Auðkúlurétt. Við fórum að sjálfsögðu í réttina að heilsa upp á tryppin okkar. Þau höfðu gengið í sumar í Hrafnarbjargahólfi, sem er hrossaafréttur Svínavatnshrepps og Torfalækjarhrepps. Það var svalt en þurrt veður og mjög gaman í réttinni. Það stóð til að við færum með Silfru okkar á Blönduós í tamningu, en hún var svo lítil að við hættum við það, hún verður að bíða þar til hún stækkar aðeins. Við tókum mikið af myndum í réttinni sem sjá má í myndaalbúminu. | ![]() |
23.09.2007 Við fengum þær góðu fréttir að Hvöt okkar frá Miðsitju hefði verið sónarskoðuð fengin við Feldi frá Hæli. Hvöt var haldið undir Sigur frá Hólabaki fyrr í sumar en kom geld frá honum. Því fórum við með hana undir Feld sem er gullfallegur þriggja vetra foli undan Hugin frá Haga og Dáð frá Blönduósi. Fyrr í sumar var Afródíta sónarskoðuð fengin við Braga frá Kópavogi. Þannig að við eigum von á folöldum undan þeim báðum næsta sumar. Einnig var Seimsdótturinni Toppu frá Gilsárteigi haldið fyrir austan undir Tjörva frá Ketilsstöðum og var sónarskoðuð fengin. Á myndinni er Bragi frá Kópavogi. | ![]() |
20.09.2007 Frumtamningar komnar á fullt! Haustvertíðin í tamningum er komin á fullt og við erum nánast búin að taka hrossin alfarið á hús. Það er orðið upppantað hjá okkur fram í nóvember, en eftir það losnar eitthvað um. Fram að jólum höfum við pláss fyrir 30 hesta á húsi, 20 pláss eru í reiðhöllinni og við komum til með að leigja önnur 10 í nærliggjandi hesthúsi. Tamningar ganga annars vel, þó að eðlilega megi búast við einhverjum töfum næstu daga vegna framkvæmdanna í reiðhöllinni. Kannski björgum við okkur fyrir horn með því að fara út undir bert loft og temja, það er nú bara aldrei að vita! | ![]() |
20.09.2007 Nú eru hafnar langþráðar framkvæmdir í reiðhöllinni. Búið er að skipta um möl í gerðunum úti og byrjað að vinna í höllinni inni. Það á að stækka áhorfendasvæðið, smíða nýja áhorfendabekki og steypa að hluta vegginn fyrir framan áhorfendasvæðin. Síðast en ekki síst á að skipta alveg um gólf í höllinni, en gamla gólfið var orðið svo hart að ekki mátti seinna vera. Eftir þessar breytingar verður höllin orðin allt önnur og mun skemmtilegri, bæði til að vinna með hesta í henni og aðstaða betri fyrir áhorfendur. Á myndinni má sjá Árna Þorgilsson, guðföður reiðhallarinnar, að störfum í reiðhöllinni í dag. | ![]() |
16.09.2007 Við riðum Laxárdalinn í gær í fyrsta skipti þegar fram fór stóðsmölun þar. Sem hestaeigendur í Blönduósbæ urðum við nú að prófa að vera með einu sinni. Við riðum frá Strjúgsskarði í Langadal í Skrapatungurétt ásamt fjölda fólks, bæði íslensku og erlendu. Það var nú frekar napurt veðrið á dalnum, en í heildina var þetta hið ágætasta ferðalag, gaman að prófa að vera túristar í svona ferð. Í dag var síðan réttað í Skrapatungurétt. Við litum aðeins í réttina og tókum nokkrar myndir sem sjá má í myndaalbúminu. | ![]() |
11.09.2007 Í dag er opnunardagur fyrir vefsíðu Sibbu og Víðis. Velkomin til okkar! | |