Hafið samband:
Sibba
Blönduós
+354 849 9370
tamning@tamning.is
Hryssurnar eru sóttar í hagann |
Þær eru reknar heim í rétt |
Hryssur og folöld komin í réttina |
Dýralæknirinn kemur á tilsettum tíma, á kerrunni eru brúsar undir blóðið |
Brúsana þarf að bera inn, einn brúsi fyrir hverja hryssu sem taka á blóð úr |
Áður en blóð er tekið, er í hverjum brúsa salt og sítruslausn, sem kemur í veg fyrir að blóðið storkni í brúsunum og hefur einnig bakteríudrepandi áhrif |
Þegar allt er klárt er hryssunum stýrt einni og einni í blóðtökubás. Á bænum eru tveir básar. Einn innandyra og annar utandyra. |
Kristján bóndi beinir hryssunum í básana, einn "starfsmann" þarf á hvern bás til að mýla hryssurnar og halda í þær. Dýralæknirinn sér svo um alla vinnu við að taka blóðið. |
Þegar hryssan hefur verið mýld og er tilbúin er hún staðdeyfð til að hún finni ekki fyrir blóðtökunálinni |
Teygja er sett um hálsinn áður en blóðtökunálinni er komið fyrir |
Nálinni er komið fyrir....... |
.....og blóðið rennur fyrirhafnarlaust í brúsann |
5 lítrar af blóði eru teknir úr hverri hryssu |
Dýralæknirinn sinnir báðum blóðtökubásum á sama tíma |
Stefán dýralæknir í action |
Það eina sem sér á hryssunum eftir blóðtökuna er smá blóð eftir nálina |
Hver brúsi er merktur með bæjarnúmeri, númeri hryssunnar og aftaná miðann er holdastig hryssunnar skráð |
Ef hryssa hefur ekki nægilegt magn hormóna í blóðinu, er ekki tekið úr henni blóð. Úr henni er tekið sýni til rannsóknar. Reynist hún hafa nægilegt magn hormóna í blóði við rannsókn, er blóð tekið úr henni við næstu blóðtöku. Tekið er blóð vikulega. Misjafnt er eftir hryssum hversu oft blóð er tekið úr þeim. Góðar blóðmerar eru að gefa um 40 lítra af blóði á sumri |
Blóðtökunni lokið þann daginn! Í brúsunum eru samtals 200 lítrar af blóði. |
Brúsarnir eru bornir til baka |
Dýralæknir raðar þeim á kerruna....... |
.....og hryssurnar fara aftur í hagann |
|
|